Ég er að hugsa um að skipta um leik… Hafa bara hreinan og beinan (eða whatever
) QI leik. Sem sagt, titillinn verður orð eða orðasamband og sá sem kemur með áhugaverðasta/besta/fyndnasta/skemmtilegasta/*insert positive adjective here* kommentið um hvern titil fær stig. Kannski ég hafi líka sætakerfi… Ætti ég að hafa þannig? Þúst 3 stig fyrir besta, 2 fyrir næsta og 1 fyrir þriðja… Eða er það bara óþarflega mikil flækja? Kannski þetta krefjist óþarflega mikilla pælinga af minni hálfu
En allavega, þið hafið þangað til næsta blogg til að segja eitthvað sniðugt um þennan titil og svo framvegis.
Annars var ég að klára Moab is my Washpot áðan. Mjög fínt að lesa í sólinni og fá borgað fyrir það. Reyndar er mér ógeðslega heitt af því að það er *kíki á hitamælinn* 17 stiga hiti, í skugganum mind you. Mínusinn við þetta er að ég fíla mikinn hita ekkert sérstaklega og ég er við það að soðna af því að snillingurinn ég er svartklædd í vinnunni… En já þetta er frábær bók. Ég hef aldrei áður lesið ævisögu og mig hefur aldrei langað til þess. En þessi sjálfsævisaga er skemmtileg
Hún byrjar líka á svona “About the author” sem er mjög fyndið, finnst mér, örugglega Rögnu líka, en ykkur hinum sem lesið bloggið mitt finnst þetta örugglega ekkert brjálæðislega skemmtilegt. Ég ætla samt að skrifa þetta hérna og sjá hvort ykkur finnst þetta eitthvað sniðugt eða ekki…
“Stephen Fry now lives in London, Norfolk and New York. He no longer steals, cheats or lies nearly as much as he used to. He still talks too much, and he still has an annoying flop of schoolboy hair that seventeen of London’s most expensive and absurd hairdressers have been able to do nothing about.
His four novels are available in a European language to suit your demanding lifestyle; the most recent The Star’s Tennis Balls, has now been issued in paperback form to suit your even more demanding pocket.
Fry played Peter in Peter’s Friends, Wilde in the film Wilde, Jeeves in the television series Jeeves & Wooster and (a closely guarded show-business secret, this) Laurie in the television series Fry & Laurie.
Much of his past life is contained between the covers of the book you are now holding, much of his present life is spent trying to be good. He rarely succeeds, yet he still tries.”
Uppáhaldssetningin mín í þessum texta er innan svigans
En já, þetta er frábær bók og ótrúlega vel skrifuð. Stephen Fry er náttúrulega bara snillingur.
Annars er ekkert merkilegt sem ég hef að segja. Nema bara að ég hlakka geeeeeðveikt til að fara á Dark Knight. Var að skoða einhverja frétt frá frumsýningunni í London og varð bara við það svakalega spennt. Ok, núna hef ég ekkert meira að segja… Enda þetta á ósköp skemmtilegri línu úr The Untitled Epic (já það er titillinn) sem Stephen Fry samdi þegar hann var 15 ára:
“Life’s a bugger and a pain in the arse.”
Inga

