Archive for the ‘Uncategorized’ Category

h1

Fall er fararheill … eða hvað?

March 15, 2008

Ég er ekki viss hvort að titillinn eigi alltaf við… En við sjáum til með þetta. Málið er það að Rúmfatalagerinn var að opna í morgun í nýju húsnæði á Glerártorgi. Svaka fínt allt víst og meira að segja rúllustigi upp á efri hæðina… Þetta mun meira að segja vera fyrsti rúllustiginn sem Akureyri hefur séð. En það er ekki alltaf gott að vera með einhvern frumkvöðlaskap… Það var einhver krakki sem hafði greinilega ekki mikla reynslu af rúllustigum sem var að klifra á honum. Og hann datt. Niður á steingólf. Úr ca fimm metra hæð!

Ekki beint góður opnunardagur hjá Rúmfó… Mér skilst að barnið hafi getað hreyft fæturna og var með meðvitund en það var víst mikið slasað á höfði. Eins og ég segi, ekki beint það skemmtilegasta sem gerist á opnunardegi. Eða gerist bara yfir höfuð…

Annars var Gettu betur í gær, svona ef þið vissuð það ekki :P Ég hafði nú aldrei miklar vonir um að við myndum vinna, en þetta gekk nú samt bara skítsæmilega :) Töpuðum ekki með nema tveim stigum og það í bráðabana. Ég var líka ákaflega ánægð með það þegar Konni sagði að þetta hefði nú verið sanngjarnt þar sem að stigið fyrir síðustu bjölluspurninguna hefði verið frekar vafasamt… Mér fannst það mjög … ehm … “big of him” eða hvað sem maður segir. MRingarnir hefður líka fengið kast hefðum við unnið út af  þessu stigi…

Anywhoo, ég er farin að vinna aftur
Inga

h1

btw

February 23, 2008

Eru 4312 kr mikið fyrir 7 DVD myndir? Það getur ekki verið…

Eru 7 DVD myndir mikið að kaupa í einu? Hmmm… Ég veit ekki…

What to do, what to do…

h1

Hello world!

July 23, 2007

Apparently my first post… Nothing to say right now, just fiddling about with the controls :Þ

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.