Archive for the ‘Thoughts’ Category

h1

OMG!

June 6, 2008

Ok, you absouletly have to watch this video. It’s love. Press play and pause right away and let it load while you read this. When you’re finished watching it comment and be completely honest, tell me if you figured out who it was before they said it. Although, fair warning, there’s probably just one person who reads this blog that can figure it out… Once you start watching you’ll know who I’m talking about :)

Anyway, it’s fan-freakin-tastic! I just have to say that there are three things that I didn’t know about this person before I saw this: one, he has rather feminine legs; two, he’s way more flexible than I thought; and three, he can do a fierce walk in heels. But unfortunately the walk is cut short in this video, you only just see a couple of steps. But it’s totally fierce :P (I feel like Tyra Banks, saying fierce over and over again in two lines… Ok, I only said it twice, but that’s twice more than I’ve ever said it ;) )

On TV-shows they always show you a little bit of what’s coming after the break, you know, so you don’t go anywhere, and when his face was shown for about one second I got an “OMG!” moment… I was like: “Was that … ? Nooooo….” Oh, ok, it’s awesome :) If you did what I told you in the beginning, the video should have finished loading by now, so watch and ENJOY :D

Inga

h1

Kartöflur og dans… Góð blanda :P

June 2, 2008

Í gær fór ég með pabba í kartöflugarðinn og setti niður kartöflur, í mögulega síðasta skipti… Á næsta ári þurfum við að væntanlega fara að kaupa kartöflur, sem ég held að við höfum bara aldrei nokkurn tíma gert. Kartöflugarðurinn okkar er við hliðina á sjúkrahúsinu, rétt hjá þyrlupallinum, og það er verið að byggja hús þarna við hliðina og það á að leggja veg yfir kartöflugarðinn okkar… Sem er alls ekki sniðugt :( Við settum niður í 15 hryggi, rúmlega 50 kartöflur í hvern hrygg og við vorum bara tvö og það tók tæpan einn og hálfan tíma. Sem er sko ekki langur tími, fyrir ykkur sem hafa ekki sett niður kartöflur áður :P

Annars var So you think you can dance að byrja aftur og mér finnst alltaf jafn gaman að horfa á þá þætti :) Ég sá ekkert af síðustu seríu af því að hún var sýnd á stöð tvö, en núna ákvað ég að downloada því sem var komið af fjórðu seríu til að hafa eitthvað til að horfa á. Mér finnst snilld að Travis, sem var í öðru sæti í annarri seríu og uppáhaldið mitt, er að “choreopgrapha” í þessari seríu. Allavega í byrjuninni, er nú ekki búin að horfa á marga þætti… Ég fór líka á youtube til að horfa á eitthvað úr fyrri seríum og þá mundi ég eftir þessum dansi, sem er bara það yndislegasta og fallegasta sem ég hef séð:

 

Hehe, svo fann ég líka þennan, hann er töff :)

 

Er ég ekki búin að vera dugeg að blogga? ;)
Inga

P.S. McFly plaggötin í loftinu voru 60…

h1

R.I.P.

January 22, 2008

Heath Ledger just died. About two or three hours ago. He was 28.

It’s sad.

:’(

h1

My eyes!!! My eyes!!!

October 13, 2007

Ég fór í Hagkaup í gær með mömmu að kaupa slátur. Sem er btw það girnilegasta í heimi… Eða ekki… Ef maður pælir í hvað er í kassanum: Þrír hausar, þrjú hjörtu, þrjár lifrar, þrjár þindir, sex nýru, þrír lítrar af blóði, mör og 15 keppir…. Yummy…. Allavega, slátrið átti ekki að vera pointið. Á meðan við vorum í Hagkaup sá ég næstum heilan vegg aaaaaf… wait for it …

JÓLASKRAUTI!!!!!!!¨

Er ekki verið að grínast?!?!? Þetta var reyndar ekki svo mikið jólaskraut, en samt jólaskraut! Ég fékk bara sjokk og forðaði mér á meðan mamma var að skoða eitthvað þarna nálægt. Sem betur fer var hún ekki að skoða jólaskrautið…

Svo þegar ég kom í vinnuna í morgun (var eldvarnarkerfið í gangi, hef ekki hugmynd um af hverju…) tek ég eftir því að á miðju gólfinu eru fimm silfruð jólatré og hálfur rekki af jólaskrauti!!!! Hvað er málið með þetta??? Það er október. Það er ekki einu sinni seinni hlutinn af október. Það er 13. október. Maður sættir sig svosem við að búðirnar fari að setja upp jólaskraut í nóvember, en október!! 13. október. sigh. Ég bara skil þetta ekki, ég var næstum búin að snúa bara við og fara heim aftur þegar ég sá þetta. Sem betur fer sést þetta ekkert voða vel frá kassanum þannig að ég blokka þetta bara út. Falleg íslenska… Ég skil ekki hvaða árátta þetta er hjá verslunum að vera komin með jólaskraut í október. Það er október for Christ’s sake…

Mig langar helst að sniðganga allar þær búðir sem eru komnar upp með jólaskraut, en það er frekar erfitt þegar ég vinn í einni svoleiðis… Vonandi kemur bara ekki meira fyrr en á einhverjum skikkanlegum tíma… Annars á ég eftir að fá áfall…

Wish me luck
Inga

h1

Whoopdiedoo

August 24, 2007

Ég er algjörlega komin í kennsluna núna :P Er að kenna nýjum starfskrafti á kassann. Það er mun auðveldara að kenna henni heldur en Eyþóri… Hann var náttúrulega bara óeðlilega lengi að læra á þetta. Ég held meira að segja að ég hafi ekkert kennt honum allt. Ég er búin að vera að kenna Kristínu í tvo tíma og hún er svo miklu fljótari að læra en Eyþór. Sem er mjög gott. Og hún notar tölustafina sem eru hægra megin á lyklaborðinu en ekki þessa sem eru efst… Mjög gott, mjög gott…

Ég hlakka svo mikið til klukkan sjö í dag. Ég bara get ekki beðið. Þá verð ég búin að vinna í sumar!!! Vúhú. Þá vinn ég ekkert næstu fjórar vikur. Frí at last :P Ég var ómögulega að nenna að vinna í dag í gær… Öhm já… Oki, vonandi skildist þetta… Allavega, í gær spurði ég Summa hvort að ég gæti fengið frí í dag. Það endaði með því að ég gat það ekki… Sem var frekar leiðinlegt. Summa fannst það greinilega líka ekkert skemmtilegt að segja nei, af því að ég er búin að vinna í allt sumar og ekkert búin að fá frí. Svo loksins þegar ég bið um það þá get ég ekki fengið frí. En það er allt í lagi. Núna get ég notið síðasta dagsins míns og vitað að allt sem ég geri mun ég aldrei gera aftur. Eða allavega flest sem ég geri. Ekki allt samt. Það er samt mjög góð tilfinning að vita að ég á aldrei aftur eftir að þurfa að panta mat, hengja upp batterí, raða hnetum í hillur og margt fleira “skemmtilegt” …

Bara sex tímar eftir… Þegar ég verð búin í mat eru bara fimm tímar eftir. Og þá lít ég ekki á klukkuna fyrr en um þrjú og þá er bara klukkutími þangað til að ég fer í kaffi. Þegar ég er búin í kaffi er bara einn og hálfur tími eftir. Og þá eftir einn og hálfan tíma er ég búin :D Svona næstum því. Þá á ég bara eftir að afgreiða fólkið sem fer ekki út þegar búðinni lokar og gera upp. Og þá er ég sko búin :D Klöppum fyrir því :)

Smile ... you're on candid camera :P

Vííííí  :)
Inga

h1

Jobb

August 17, 2007

Ég er orðin kennari :) Hihi, ógisslega dugleg sko… Er að kenna Eyþóri á kassann. Það er fjör… Hann er ekki mjög tölvuvæddur þannig að þetta tekur svolítinn tíma, en þetta er allt að koma. Svo var líka verið að einfalda kassakerfið, sem er mikill léttir. Posinn var sko alltaf í sér forriti og maður þurfti alltaf að vera að skipta á milli og svo þurfti maður líka að skrifa númer fyrir hverja tegund af korti. Núna er ekkert bras, bara renna kortinu í gegn og þá reddast allt :)

Ég fór í golf í gær. Það var fjör. Fór sko með vinnunni. Við vorum á Leifsstöðum. Stuttar setningar. Það eru níu holur allar par 3 þannig að ef maður fer hringinn á pari fer maður á 27 höggum. Ég fór á 62 höggum … og var ánægð með það :P Svo fékk ég líka 15 í forgjöf þannig að ég fór þá á 47 höggum… Hihi, ekkert smá góð :) Oh, svo missti ég líka út úr mér í fyrradag hvenær ég ætlaði að hætta… Ég var löngu búin að segja yfirmanninum mínum það en svo sagði ég óvart Magnúsi… Það var ekki sniðugt. Það er stórhættulegt að hætta hérna… Maður er bundinn og hent í heita pottinn ef maður er heppinn, ef maður er óheppinn ér maður bleyttur úti líka… Sprautað á mann með brunaslöngu eða eitthvað álíka. Þannig að það er ekki sniðugt að núna veit fólk að ég er að hætta, ég get ekki bara hlaupið í burtu eins og ég ætlaði að gera… Vá hvað ég gerði mikið af þremur punktum.

Ég hlakka samt ógeðslega mikið til að hætta að vinna. Ég get ekki beðið eftir því að fá að sofa lengur en til 6:55 á morgnanna og að þurfa ekki að vinna í 10 klukkutíma á hverjum degi… Það er mjög þreytandi þótt að ég sé ekki að gera neitt mikið. Svo hlakka ég líka til þess að þurfa ekki að hitta ákveðna manneskju á hverjum degi…

Hihi, ríka og fína fólkið er víst mannlegt líka ;) :

Haha

Inga

h1

Hot or not…

August 15, 2007

Það eru 17 dagar í Rhodos. 17 dagar… Þúst 17! Ég á níu vinnudaga eftir ef ég tel daginn í dag með. Ég get ekki beðið eftir því að hætta í vinnunni. Ég er kominn með svo agalega mikinn vinnuleiða að það er bara ekki fyndið. Ég hlakka svo til að fá heila viku til að gera ekki neitt. Svo er afmælið mitt þremur dögum eftir að við komum heim frá Rhodos. Ég hlakka nú reyndar ekki enn til þess, veit ekki alveg hvað ég á að gera. Mér var bannað að halda upp á það úti á Rhodos. Við sjáum til hvað gerist þegar við erum komin heim aftur…

Hvernig skrifar maður 90 með bókstöfum? Ég er ekki að djóka, ég kann ekki að skrifa 90 með bókstöfum… Nítíu eða níutíu???

Hehe, það er geðveikt fyndið (nei oki, ekki geðveikt fyndið, ekki einu sinni bara fyndið, en samt sniðugt finnst mér…), ég er að lesa The Gun Seller eftir Hugh Laurie þegar ég hef ekkert að gera í vinnunni og núna eru þrír starfsmenn sem hafa spurt mig útí þessa bók. Eða réttara sagt höfundinn. Einn þekkti hann af því að HL spilar á píanó, tveir úr House og annar þeirra líka úr Jeeves & Wooster. Viðbrögðin voru alltaf “Núnú skrifar hann bækur?” og svarið mitt var alltaf “Bara þessa einu…” og þá fóru þeir að hlæja.

Ég dýrka Hugh Laurie. Hann er snillingur. Það er ekki hægt að dýrka hann ekki.

Ég og Guðrún fundum loksins mynd fyrir hana að hengja upp inná lager. Það eru sko bara hálf- og algjörlega naktar konur þar. Sko á myndunum… Guðrún þurfti að fá eitthvað fyrir sig. Við vorum búnar að vera leita á netinu frekar mikið, en fundum aldrei neina góða, né nógu stóra. Góð myndirnar voru alltaf svo litlar. Svo loksins fundum við eina sem var allavega A4 stærð. Guðrún þarf að laumast til að hengja hana upp einhvern tímann… En er þetta ekki bara fín mynd:

)

Fyrsta valið var reyndar þessi mynd, en hún var ekki til nógu stór…

Grrr... :P

Hihi, það er gaman að vera á netinu að leita að hot myndum :P Btw fattar einhver hver þetta er?

Inga

h1

Attention shoppers…

July 30, 2007

Viðskiptavinir takið eftir!

Þið eruð stödd inní búð, sem virkar eins og flestar aðrar búðir. Þið komið inn um hurðina sem á stendur ‘Inn’ og þurfið ekki að furða ykkur á að þið komist ekki inn um hurðina sem á stendur ‘Út’. Hún opnast hinum megin frá. Einnig er mjög ólíklegt að hurðirnar opnist eftir lokun og virkar ekkert að stara á afgreiðslufólkið sem er að gera upp. Það vill komast heim… Þegar viðskiptavinur fer eftir að hurðunum hefur verið lokað er mjög illa séð ef einhver annar reynir að smeygja sér inn á meðan hurðin er að lokast á eftir fyrri viðskiptavininum. Ef þú ert staddur/stödd inni í búðinni þegar hún lokar væri afgreiðslufólkið þér afar þakklátt ef þú vildir gjöra svo vel og hlusta á tilkynninguna um að það sé búið að loka, en dundir þér ekki bara eitthvað inní búð og segir svo þegar einhver býðst til að aðstoða þig: “Nei, nei ég er bara að skoða…” Það er búið að loka sem þýðir að þú ert ekkert sértstaklega velkomin lengur…

Þegar þú kemur að kassanum til að borga eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:

  1. Ef þú ert með litla körfu (svona sem þú heldur á) ekki skilja hana eftir á afgreiðsluborðinu. Þú mundir aldrei gera það í neinni búð, af hverju ættiru þá að gera það hér? Það er haugur að körfum rétt við endann á borðinu, eins og alls staðar annars staðar, sem er einmitt ætlaður svona körfum.
  2. Ef þú ert með stóra körfu (svona á hjólum) ekki skilja hana eftir þannig að hún sé fyrir röðinni. Það skilur enginn af hverju þú gerir þetta. Karfan er bara fyrir þarna og þeir sem koma á eftir þér þurfa að taka krók fram hjá henni. Góð regla er að líta aðeins í kringum sig til að sjá hvar körfurnar eru, eða hreinlega bara skila þeim þar sem þú tókst hana… Sem er btw eini staðurinn sem þær eiga að vera.
  3. Pokinn kostar 15 kr. Hann kostar alls staðar 15 kr. Hann er ekki ókeypis hérna (þótt að við gefum gríðarlega marga af því að við nennum ekki að taka 15 kr út af korti hjá fólki sem fattar eftir á að pokinn kosti víst eitthvað…) og hefur aldrei verið það. Pokarnir eru staðsettir beint fyrir framan nefið á þér þegar þú kemur að kassanum. Á nákvæmlega sama stað og í öllum öðrum búðum.
  4. Þegar verið er að afgreiða þig þá eru kassastarfsmennirnir þér mjög þakklátir ef þú talar ekki í símann þinn á meðan. Það er skilti/miði sem er þónokkuð áberandi sem á stendur skýrum stöfum að það sé ekki vel séð að þú sért að tala í símann. Það truflar afgreiðsluna töluvert og svo er það bara líka dónalegt. Ef þú ert að tala í símann geturu ekki að búist við því að afgreiðslufólkið sé gríðarlega ánægt með þig. Það dýrkar hins vegar viðskiptavini sem skella á eða segja manneskjunni sem er að hringja að hringja aftur eftir smá stund af því að það er verið að afgreiða það. Og afsakar sig svo. Oh the joy.
  5. Munurinn á búðinni sem þú ert staddur/stödd í og matvörubúðum er sá að það er ekki færiband á kassanum. Ef þú setur hlutinn á endann á afgreiðsluborðinu, þá hreyfist hann ekki að sjálfu sér nær. Börnum er fyrirgefið þetta athæfi, en fáum öðrum. Kassastarfsmennirnir eru ekki með lengri hendur en neinir aðrir. Þeir ná ekki alla leiðina út á enda og væru þér mjög þakklátir ef þú hjálpaðir aðeins til með því að ýta vörunum nær.
  6. Það eru tveir kassar við annan útganginn (svo er líka einn við hinn útganginn). Þegar þú sérð einn kassastarfsmann þar sem eru tveir kassar eru mjög miklar líkur á því að einungis annar kassinn sé opinn. Þær líkur aukast gríðarlega ef á hinum kassanum er skilti sem á stendur ‘Kassinn er lokaður. Vinsamlegast snúið yður á næsta kassa’. Þetta skilti þýðir að að það er enginn að afgreiða þarna megin. Kassastarfsmaðurinn er við hinn kassann. Að spyrja gáfulega “Ó, ertu þarna megin??” breytir litlu.
  7. Ef þið eruð með reikning eða fáið afslátt á einhvern hátt látiði kassastarfsmanninn vita það ÁÐUR en þið borgið. Það er aðalatriðið. Það er svo leiðinlegt og svo mikið bras að setja inn einhver afslátt EFTIR að það er búið að borga. Ef þið munið ekki eftir afsláttinum fyrr eftir á getið þið búist við að fá miður skemmtilegt augnaráð frá kassastarfsmanninum.

Þetta ætti að ná yfir það helsta sem gæti komið upp á meðan þú verslar. Ef þú ert ekki staddur/stödd í búðinni á meðan þú verslar heldur ert að hringja, þá eru aðrir hlutir sem þú þarft að hafa í huga:

  1. Það er ekki mannskjunni sem svarar í símann að kenna ef það er ekki svarað inni í deild. Þetta er mjög mikilvægt.
  2. Ef þú hefur verið að bíða lengi og enginn svarar þá er ekki nauðsynlegt að segja manneskjunni það sem svarar loksins í símann. Það er mjög líklegt að hún viti það af því að síminn er búinn að vera að hringja allan þann tíma á meðan þú beiðst. Ástæðan fyrir því að ekki hefur verið svarað fyrr er sú að við erum upptekin. Af einhverjum furðulegum ástæðum er ekki hægt að ráða manneskju sem gerir ekkert annað en að svara í símann þannig að kassastarfsmennirnir lenda í því að þurfa að svara í símann. Þeir hafa það fyrir reglu að afgreiða fólkið sem tók sér tíma í að koma sér út í búðina áður en þeir afgreiða þá sem eru í símanum.

Núna hefur verið farið yfir allt sem mér dettur í hug sem gæti farið úrskeyðis á meðan þið verslið. Ef þið sjáið ykkur fært að hafa þetta á allt saman í huga á meðan þið verslið væri það algjörlega frábært. Já, á meðan ég man, Lífland er hinum megin við götuna. Mér er alveg sama þótt að þú sjáir ekki skiltið eða fánana sem eru fyrir utan, Lífland er hinum megin við götuna. Ég er ekki að ljúga að þér af því að ég vil ekki að þú verslir hestavörur. Lífland er í alvörunni hinum megin við götuna. Ef það væri hér þá myndi ég segja þér það. En það er ekki hér, Lífland er hinum megin við götuna.

Takk fyrir lesturinn og eigið góðan dag,
Mjög svo vinnuþreyttur kassastarfsmaður Húsasmiðjunnar

h1

Grrr… ruff ruff…

July 27, 2007

Best að skrifa hér syndir mínar fyrst að Sigrún klukkaði mig… Ég get ekki klukkað neinn fyrr en ég kem heim, so beware! djók… Bara svona að vara ykkur við, þá er ég hef ég alveg gríðarlega lítið hugmyndaflug þegar það kemur að einhverju svona, þannig að þetta eru frekar lélegar syndir… Feel free to make suggestions :P

1. Mér finns margir/allir (nei oki, alls ekki allir, en margir samt) viðskiptavinir Húsó vera hálfvitar…

2. Ég er gríðarlega löt við að vakna á morgnanna

3. Ég hata að taka til í herberginu mínu (ergo it’s a mess…)

4. Guðrún er kolrugluð… Sem er náttúrulega mikil synd :P

5. I’m a sucker for chocolates…

6. Ég hata símann í Húsó (ég gæti auðveldlega fyllt þennan lista af hlutum sem ég hata við Húsó… but that’s not the point :P )

7. Ben&Jerry’s … ’nuff said

8. Ég get eytt hellings pening á stuttum tíma… (Jájá, þetta var lélegt, en ég er algjörlega tóm í hausnum núna…)

Told you it sucked… Not that anyone would ever spill their juiciest sins on a thing like this… Can’t think of any juicy sins that I have anyway, so it doesn’t really matter now does it…

I’m sad. I finished Harry Potter yesterday. I’m not going to say anything about the plot, I don’t want to ruin it for anyone, but a word of advice. When you’re reading the last four/five chapters (from chapter 28/29) make sure you’re not reading them in public. Unless you want to cry your eyes out in front of people… Oh and why are we told that two main characters die? There were at least six (no wait, seven) characters that died that I would count as main characters… They’re not all equally important, but all, I think, can be main characters…

Ég er búin að vera marga klukkutíma að skrifa þetta blogg… Það var ekki neitt að gera í morgun (ég held að ég hafi afgreitt færri en 10 fyrir hádegi) en svo eftir hádegi komu bara milljón manns!!! Í alvörunni, ég er búin að vera að afgreiða næstum því non-stop síðan um hádegi… Og mér er orðið virkilega illt í bakinu. Hlakka til að fara í kaffi … og heim að sofa… Best að setja þetta blogg inn núna svo að ég geri það einhvern tímann…

Inga (with a *sigh*)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.