h1

The Sherry Monocle

March 17, 2009

Ég var að fikta hérna inni þannig að ég ákvað að ég gæti alveg bloggað, svona fyrst að ég var nú búin að logga mig inn og svona. Svo hef ég ekkert betra að gera…

Ég veit samt ekki alveg hvað ég á að blogga um… Ég geri svo agalega lítið þessa dagana nema að fara í skólann, fara í ræktina og sitja á rassinum og gera ekki neitt. Góð blanda.

Ég var að klára skemmtilega leiðinlegt typpaverkefni í EIR og var að komast að því að ég á að flytja lauslætisfyrirlesturinn minn í næstu viku. Gaman gaman. Eða svoleiðis… Btw, ef þið hafið eitthvað áhugavert/gáfulegt/sniðugt/óáhugavert/leiðinlegt að segja um lauslæti endilega segið þið mér það. Ég er að reyna að vera ekkert voðalega stressuð yfir þessum fyrirlestri, þetta eru nú bara 10-15 mín, en þetta er einstaklings og ég á pottþétt eftir að vera stressuð þegar ég reyni að fara að flytja þetta. Það hjálpar ekki að ég mun vera fyrst að flytja… Wonderful. Já svo þarf ég líka að skrifa bókagagnrýni, en ég er nú ekkert að stressa mig yfir því. Það er langt í að ég þurfi að skila því og svo er ekkert mál að skrifa smá bókagagnrýni :)

Svo eru bara ca þrjár vikur í páskafrí :D Eftir það eru síðan bara tvær vikur eftir á stundatöflunni og þessar tvær vikur eru samtals fjórir skóladagar hjá mér… Sem er næs :)

Já, svo er stuð í ræktinni. Hlakka til að fá Kolfinnu norður og með mér í Body Combat :) Hlakka líka til að fara suður…

Þetta er orðið hálf endasleppt hjá mér…

4 comments

  1. yeyj:)
    og ég hlakka líka til að fá þig suður

    sæll hvað það er stutt í páska. og ómægod hvað ég þarf að fara að drösla mér til að byrja að læra aftur! sjitt.

    en veistu inga 15 mín eru eins og 5 mín þegar maður er að flytja fyrirlestur. við vorum fjögur að flytja fyrirlestur um óhefðbundnar lækningar um daginn og áttum í raun bara að vera svona rúma klst með hann en fórum alveg óvart uppí klst og 40 mín því við gátum ekki stytt hann… tíminn líka flýgur þegar maður er í pontunni, svo ég hef fulla trú á þér í þessu, no stress:)


  2. Jæja hvernig gekk fyrirlesturinn? :D


  3. Hehe hann gekk bara ágætlega sko :) Þetta var ekkert svo mikið mál :P


  4. auðvitað ekki:)



Leave a Comment