h1

2008 in photos

Já ég hef hér með ákveðið að gera eitt stykki myndaannálthingamajiggy… Gaman gaman :P

Kolfinna til i matinn

Þann 4. janúar fórum við Kolfinna í mat til SigRúnars og fengum hangikjöt og meððí. Svaka heimilislegt og yummy :)

Blásið á kertin

Ragna átti afmæli 8. febrúar og fékk svona líka fína köku með sprittkertum til að blása á :P Stefaníu fannst það augljóslega skemmtilegt…

Rör...

Rörin voru flott… Falleg í laginu og meira að segja sjálflýsandi líka :)

Suðurferð

13.-17. febrúar fór árgangurinn suður í náms- og starfskynningarferð. Sem var bara ágætisskemmtun. Langar svolítið að setja inn ákveðna mynd af ákveðinni manneskju í svuntu að borða ís með pillum, eeeeeeen ég held að ég sleppi því…

Í keilu

Snæfríður fór í keilu í fyrsta skipti fyrir sunnan og brilleraði ekkert smá. Rústaði bara okkur öllum ef ég man rétt :)

Thule-auglýsing

1. mars var okkur aftur boðið í kotið til SigRúnars. Núna þó “bara” í drykkju :P Nanna skemmti sér með Thule-inn sinn…

Nanna var of lengi á klósettinu

Rúnar ákvað að hræða Nönnu þegar hún kæmi út af klósettinu. Það gekk illa þrátt fyrir hvað hann æfði sig vel :P

Vinningssvipirnir

Ég er bara með myndir úr einni Gettu betur ferð, sem var 6. mars, þá ferð unnum við en allt í allt þá lentum við nú í öðru sæti, sem var bara helvíti gott.

Busalingar

29. mars var busapartý, sem mjög fáir böðlar mættu í. Við vorum samt nokkur… Til dæmis:

Fyrir

Ragna, fyrir drykkju… Og líka:

Eftir

Ragna eftir drykkju :)

Salka með pakkann

3.-6. apríl var svo hin langþráða óvissuferð í ferðamálafræðinni. Þar sem minn hópur var sendur af einhverjum óskiljanlegum ástæðum til Frankfurt…

Ebbelwoi

Það eina sem var gaman þarna var dýragarðurinn, meira að segja Ebbelwoi-ið var ekki gott þrátt fyrir brosin á stelpunum…

Ammælisfólk

Kolfinna átti afmæli 20. apríl… Fólk greinilega eitthvað misáhugasamt um það :P

Kerti

Kolfinna fékk ekki sprittkerti… Greyið :P

Grillmeistarinn

1. maí hittust A og B bekkingarnir og grilluðu saman. Salka stóð sig vel sem yfirgrillari.

ABbekkingar

Þetta er náttúrulega bara frábærlega góð mynd…

Kå i kollhnisum ... kollhnisum? kollhnis... kollnis? anyway...

4U hélt svo litla Ólympíleika 13. maí. Kolfinna brilleraði þar eins og sjá má. Það var líka mjöööög fyndið þegar sumir fengu egg yfir andlitið :P

Fansi fansi

Svo var skólinn bara að klárast… 22. maí var sparifatadagur og fólk carminaðist.

Sexyness...

Svona minningar á maður úr enskutímum…

Mússimússi

Addi og Systa voru krúttleg  í sparifötunum :)

P

Óli og Stefanía voru líka krúttleg :P

Borðmálun

Svo fór maður úr sparifötunum og undirbjó dimissio :D Sumir fóru í ógisslega fína gula boli :P

)

Já 4A er sko totoly ozome! Með langflottasta vagninn líka :D

Fólk

Daginn eftir var svo síðasti söngsalurinn okkar. Sorglegt…

Fallegar

Herdís og Stefanía voru blautar og ánægðar eftir þrautabrautina :P

Ljónið og pjáturkarlinn

Steinbi og Óli voru fínir :) Fínheitin minnkuðu samt hjá Óla um leið og hann fór að hreyfa sig eitthvað að ráði…

D

Vallarnir alltaf að troða sér inná myndir :P

Tvær litlar Dóróteur

Sigrún og Snow í stuði á vagninum okkar.

Viiiiii!!!!

Ragna og Herdís skemmtu sér á trampolíninu hennar Ingu íþróttakennara sem fékk btw gríðarlega flotta mynd í gjöf…

Teygjur

Skoh ekki fín? :)

P

30. maí tók ég svo skrautið mitt úr loftinu til að hafa fínt fyrir útskriftina … afsakið, brautskráninguna :)

Fólk

Um kvöldið hittist svo málabrautin og við horfðum saman á fermyndböndin okkar. Það var fínastsa skemmtun bara :)

Kjööööööt

7. júní hittumst við nokkrar í sveitinni hjá Rögnu og grilluðum og fórum í pottinn og höfðum það kósí. Við komum líka með aaaaaðeins of mikinn mat…

Útskriftarárgangur 2008

Jább svo útskrifuðumst við einhvern vegin…

4A

4A :)

Svo tókst mér að eyðileggja myndavélina mína þannig að það eru engar myndir allt sumarið og haustið. Ég gerði nú ekki neitt sérstaklega merkilegt svosem, en það hefði nú verið gaman að hafa einhverjar myndir…

Reisan

Ég endaði svo með því að kaupa mér nýja myndavél rétt áður en við Ragna fórum út. Sem var mjög sniðugt :) Allavega þá fórum við út 18. október…

Flott

22. nóvember fórum við svo á McFly tónleika, sem var gegt :P Þetta var eitt af þónokkrum skemmtilegum skilaboðum sem komu á skjáinn…

Dougie

Við vorum Dougie megin :)

Fljúgandi svið

Þeir tóku upp á því að láta sviðið fljúga með sig yfir áhorfendurna og lenda aftast í salnum. Það var fyndið :)

Mússimússi

Ferðin endaði svo í DK hjá systur Rögnu þar sem Hrafnkell sonur hennar var í stuði :) Krútt :P

Fina Herdis

20. desember heimsóttum við Ragna Herdísi og djömmuðum á Reyðarfirði. Sem var sko stuð :) Ég ætla ekkert að setja bleiku myndina hérna inn :P

Dúlla

Kisan hans Adams, sem heitir Dúlla :)

Jólatré

Ein fín jólamynd svona í endann, jólatréið með fullt af áramótadrasli :)

Komment komment :)

8 comments

  1. úff, mér er búið að detta í hug svo mörg komment að ég þarf að byrja að skoða á byrjuninni til að muna þau öll!! ok, here goes:

    Hahah, ís með pilllum (þurfti pínu að hugsa um hvern þú varst að tala…)!

    Fyrir drykkju og eftir drykkju, ég held að það muni nákvæmlega þessum tveim sopum sem vantar í glasið mitt :P

    Ég er ógeðslega sorgmædd yfir því að hafa misst af Litlu ólympíuleikunum. Og síðasta enskutímanum (ég amk held að ég hafi misst af þessu, þetta var á sparífatadeginum?) Mér finnst líka allar síðustu myndirnar úr MA sorglegar því það er svo langt síðan þetta var :(

    Bleikamyndin??? Ég ekki muna… Já jú ég man :P
    Stendur á skjánum Dumbledore is fit as?


  2. Sko þú gætir alveg hafað fyllt glasið aftur á milli… :P

    Já, já og já :)


  3. vúhúú alltaf gaman að skoða svona myndaannála :) oh vá ég man hvað mér fannst gaman á trampólíninu enda í fyrsta skipti sem ég prófaði svoleiðis apparat og auk þess var Erla með mér að hoppa og við hlógum allan tímann :Þ bara skemmtilegt

    íspillumyndin er bara fyndin…haha þetta rímar


  4. Hehe vá alveg búin að gleyma þessum hittingi 1. mars.. Og djís vissi þá ekkert hvað Rúnar var að gera þarna frammi…


  5. gamangaman:)
    og já þetta var sko rúst á ólympíuleikunum;) og váá ég hló svo ótrúlega mikið þegar súsí kastaði egginu framaní sollu. viðeigandi að hún náði fram hefndum svona rétt fyrir útskrift, búin að leita færis í 2 og hálft ár;)
    svo er ég búin að gleyma öllu hinu sem ég ætlaði að kommenta á. geri það þá bara seinna:)


  6. Jeij alltaf gaman að skoða svona myndaannála… sérstaklega þegar maður finnur einhverjar myndir af sjálfum sér(má segja þetta, finnst þetta kjánalegt.)


  7. Hehe það er nú gaman :) Já það má segja þetta, kjánalegt or not :P


  8. Hressandi annáll, Inga. Ég varð meyr og væmin í framan þegar ég sá myndirnar tvær af 4.A og tók ég mér það bessaleyfi að vista þær báðar. Ég er reyndar mjög ánægð með það því hvoruga myndina á ég, vei.

    En trampolín hoppið var virkilega skemmtilegt Snæfríður, hahah!



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.